Kristján Gíslason einnig þekktur sem Hringfarinn ( f. 1956) er íslenskur kerfisfræðingur og ævintýramaður sem hefur ferðast um heiminn á mótórhjóli sínu. Hann varð fyrstur Íslendinga til að ferðast einn um heiminn á mótorhjóli. Tvær bækur hafa verið gefnar út um ferðir hans og einnig 15 heimildarþættir sem sýndir voru á RÚV.

Öll innkoma af bókunum rennur í styrktarsjóð Hringfarans og hafa Kristján og Ásdís Rósa Baldursdóttir, eiginkona hans, úthlutað 36 sinnum úr sjóðnum til ýmissa góðgerðarmála. Þar má nefna t.d. forvarnaverkefni gegn vímuefnanotkun ungmenna, Broskallaverkefnið í Eþíópíu (menntunarverkefni í Afríku, sjá: Tenglar), Vildarbarnasjóð Icelandair og Bandalag íslenskra skáta.

Störf og fjölskylda

breyta

Kristján er menntaður kerfisfræðingur. Hann vann fyrir  SÍS  (Samband íslenskra samvinnufélaga) 1978-1985, rak sitt eigið fyrirtæki, Radíómiðun 1985-2013, en fyrirtækið seldi einkum siglinga- og fiskileitartæki og ýmiss konar fjarskiptatæki. Kristján hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja í gegnum árin og 2008-2012 var hann formaður skiptinemasamtakanna  AFS  á Íslandi.

Kristján er kvæntur Ásdísi Rósu Baldursdóttur (f. 1956), fv. kennara við Verzlunarskóla Íslands. Þau eiga þrjá syni: Gísla (f. 1981), Baldur (f. 1983) og Árna (f. 1989) og 5 barnabörn. Ásdís hefur hin síðari ár oft fylgt Kristjáni á mótorhjólaferðum hans og þá hefur Baldur nokkrum sinnum slegist með í för með föður sínum hluta af ferðunum. Hringfarinn hefur gefið út tvær bækur um ævintýraleg ferðalög sín. Þetta eru ríkulega myndskreyttar ferðasögur og rennur öll innkoma (100%) vegna sölu þeirra til góðgerðarmála. Þá hefur Kristján haldið fjölmarga fyrirlestra um ferðirnar og sagt sögu sína í ýmsum viðtölum og hlaðvarpsþáttum (sjá: Tenglar).

Ferðalög

breyta

Kristján ákvað að hlýða hvatningarorðum föður síns um að hætta aldrei að þora og lagði upp í hnattferð á mótórhjóli sínu árið 2014. Upphaflega var ætlunin að fara með öðrum mótorhjólamanni í leiðangurinn en sá hætti við og fór því Kristján einn og varði ferðalagið í 10 mánuði í stað þriggja. Hann hjólaði rétt um 48.000 kílómetra í gegnum 35 lönd í fimm heimsálfum. Hann fór síðar ásamt eiginkonu sinni í leiðangra um Bandaríkin, Ástralíu, Nýja-Sjáland og ýmis lönd í Evrópu.

Á árunum 2016-2023 fór fór Kristján í fleiri leiðangra á mótorhjólinu, m.a. til Rússlands, Hvíta-Rússlands, Miðausturlönd, 13 ríki Afríku, Færeyjar, Patagoniu í Suður Ameríku - og einnig um heimahéruð á Íslandi.

2014-2015:

Ísland, Færeyjar, Danmörk, Þýskaland, Tékkland, Slóvakía, Austurríki, Ungverjaland, Rúmenía, Búlgaría, Tyrkland, Íran, Sameinuðu arabísku furstadæmin (SAF), Óman, Indland, Nepal, Myanmar, Taíland, Malasía, Singapúr, Indónesía, Ástralía, Chile, Argentína, Perú, Ekvador, Kólumbía, Panama, Kosta Ríka, Níkaragva, Hondúras, El Salvador, Gvatemala, Mexíkó, USA.

2016:

Ísland, Spánn.

2017:

Ástralía, Nýja-Sjáland og Marokkó.

2018:

Bandaríkin: frá Washington DC til San Francisco. Ísland, Færeyjar, Danmörk, Þýskaland, Pólland, Eistland, Lettland, Litháen, Rússland, Hvíta-Rússland, Slóvakía, Austurríki, Ungverjaland, Slóvenía, Króatía, Svartfjallaland, Albanía.

2019:

Grikkland, Ísrael, Jórdanía, Egyptaland, Súdan, Eþíópía, Kenía, Úganda, Rúanda, Kongó, Tansanía, Malaví, Zambía, Zimbabve, Botsvana, Lesótó, Suður-Afríka.

2020:

Ísland.

2021:

Ísland, Færeyjar, Svíþjóð, Danmörk, Noregur.

2022:

Chile, Argentína, Patagonia.

2023:

Japan.

Bækur

breyta

2018 Hringfarinn, einn á hjóli í hnattferð/Sliding Through – Around the World on a Motorbike, Alone. 190 síðna bók, hundruðir mynda og 66 sögur.

2021 Andlit Afríku – Hringfarinn – Einn á ferð um Afríku (Faces of Africa, Hringfarinn - Alone on a Motorbike in Africa) 185 blaðsíðna ljósmyndabók, 23 sögur og QR-kóðar inn á 33 stutt myndbönd úr ferðinni.

Heimildamyndir

breyta

2019:

Hringfarinn – í kringum hnöttinn á mótorhjóli, 3 þættir.

2020:

Hringfarinn – Bandaríkin, 1 þáttur.

Hringfarinn – Rússland, 1 þáttur.

2022:

Hringfarinn – Á leið til Afríku (Evrópa, Miðausturlönd), 2 þættir.

Hringfarinn – Afríka, 3 þættir.

2023:

Hringfarinn – Ísland, 3 þættir.

2024:

Hringfarinn – Chile, Argentína (Patagonia), 2 þættir.

Tenglar

breyta

[1]