Horblaðka
Horblaðka, álftakólfur eða reiðingsgras (fræðiheiti: Menyanthes trifoliata) er eina jurtin í ættkvíslinni Menyanthes. Hún er lág með jarðlægum ljósgrænum þrískiptum blöðum. Blöðin eru egglaga. Jurtin breiðir úr sér með rótarskotum neðanjarðar. Jurtin er útbreidd um allt norðurhvel jarðar, aðallega í votlendi.
Horblaðka | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Menyanthes trifoliata L. |
Á Íslandi er horblaðka algeng á láglendi um allt land. Hún hefur þótt góð lækningajurt einkum til að lækna skyrbjúg. Hún hefur líka verið notuð til að beiskja öl þar sem hún er beisk án þess að vera barkandi. Magnús Stephensen ritar meðal annars um hana í Klausturpóstinn 1820:
- „I humalls stad má seydi jurtarinnar brúka til ölbruggunar; gjörir þad ölid bædi heilnæmt og áþeckt því nafnfræga enska öli, er nefnist Porter.“[1]
Heimildir
breyta- ↑ Magnús Stephensen, „Horbladka (Reidingagras Menyanthes trifoliata.)“, Klausturpósturinn, 3. árg. 1820, 8. tbl., s. 134-136. (Tímarit.is).
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist horblöðku.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist horblöðku.
Wikilífverur eru með efni sem tengist horblöðku.