Hið alsjáandi auga
Hið alsjáandi auga er tákn sem sýnir auga umlukið ljósgeisla eða umvafið nokkurskonar dýrð. Táknið er yfirleitt notað sem tákn um tilvist Guðs sem fylgist með gjörðum mannkynsins og þá aðallega inni í þríhyrningi sem talið er að tákni heilaga þrenningu.
Nútímanotkun táknsins fer aðallega fram í Bandaríkjunum en þar er það t.d. notað á bakhluta innsiglis ríkisins sem sést m.a. á dollaraseðlum.
Heimildir
breytaFyrirmynd greinarinnar var „Eye of Providence“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. mars 2006.