Hengibrú

Hengibrú er ein gerð brúar, þar sem brúargólfið eða brautin, hangir í burðarköplum sem festir eru í akkeri við báða enda. Hengibrýr í frumstæðri mynd eru eflaust nokkur þúsund ára gamlar, og eru dæmi um slíkar brýr í Kína á 2. öld fyrir Krist.

Iðubrú, hengibrú yfir Hvítá í Árnessýslu.
Golden Gate-brúin, yfir „Gullna hliðið“, sem tengir San Francisco-flóa við Kyrrahafið.

Á 19. öld kom fram sú hugmynd að lyfta burðarköplunum með háum turnum, eða stöplum, og má segja að þá hafi komið fram hengibrýr í nútímamerkingu. Með tækniframförum á síðustu áratugum hefur tekist að byggja lengri hengibrýr en áður var mögulegt. Er þar bæði verið að uppfylla ákveðnar þarfir í samgöngum, en einnig að fullnægja metnaði verkfræðinga og þjóða, með því að fara að ystu mörkum þess sem er tæknilega mögulegt. Auk þess eru hengibrýr oft glæsileg mannvirki.

Hengibrýr eru oft flokkaðar eftir því hvað þær spanna langt haf milli meginstöpla. Lengstu hengibrýr í heimi eru nú:

  1. Akashi-Kaikyo-brúin – (Japan) – 1.991 metrar – 1998
  2. Xihoumen-brúin – (Kína) – 1.650 metrar – 2007
  3. Stórabeltis-brúin – (Danmörk) – 1.624 metrar – 1998
  4. Runyang-brúin – (Kína) – 1.490 metrar – 2005
  5. Humber-brúin – (England) – 1.410 metrar – 1981, (lengsta haf frá 1981 – 1998)
  6. Jiangyin-brúin – (Kína, Yangtse fljót) – 1.385 metrar – 1999
  7. Tsing Ma-brúin – (Hong Kong) – 1.377 metrar – 1997, (lengsta haf sem er bæði fyrir bíla og járnbraut)
  8. Verrazano-Narrows-brúin – (Bandaríkin) – 1.298 metrar – 1964, (lengsta haf frá 1964 – 1981)
  9. Golden Gate-brúin – (Bandaríkin) – 1.280 metrar – 1937, (lengsta haf frá 1937 – 1964)
  10. Yangluo-brúin – (Kína) – 1.280 metrar – 2007
  11. Sotra-brúin – (Noregur) – 1.236 metrar – 1971
  12. Högakusten-brúin – (Svíþjóð) – 1.210 metrar – 1997