Haustfeti
Haustfeti (fræðiheiti: Operophtera brumata) er lítið fiðrildi af fetaætt. Haustfetinn verpir eggjum sínum á trjágreinar. Þar bíða þau vors og klekjast þegar brum fer að springa. Lirfurnar eru allt fram eftir júní að vaxa. Þær éta laufblöð margra trjátegunda og geta skaðað þau verulega. Karldýrin eru nokkuð áberandi. Þau sitja oft í verulegum fjölda á húsveggjum, gulgrá á lit. Á lygnum kvöldum laðast haustfetinn gjarnan að útiljósum eða ljósum í gluggum. Kvendýrin eru öllu óásjálegri og verða fæstir þeirra varir. Í stað vængja hafa þau aðeins örlitla vængstúfa.
Haustfeti | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Operophtera brumata Linnaeus, 1758 |
Haustfeti á Íslandi
breytaFyrstu fiðrildin birtast á Íslandi upp úr miðjum september, en flest þó ekki fyrr en í október. Stöku haustfetar sjást fram í miðjan nóvember. Haustfeti er útbreiddur um allt sunnanvert landið og hefur auk þess fundist á Akureyri. Hann er ekki vandlátur í fæðuvali og sækir á flestöll lauftré sem ræktuð eru hér á landi.[1] Haustfetinn varð að töluverðri plágu á Akureyri árið 1976-1977.
Tenglar
breyta- ↑ Skógræktin. „Haustfeti“. Skógræktin. Sótt 11. september 2020.
- Haustfeti – sannur haustboði; af ni.is Geymt 27 september 2011 í Wayback Machine
- Haustfeti; af ni.is Geymt 20 ágúst 2009 í Wayback Machine
- Óvenjumikið af haustfiðrildum; grein í Morgunblaðinu 2003
- Haustfeti Geymt 13 apríl 2019 í Wayback Machine af Náttúrufræðistofnun Íslands