Höfðaskóli
Höfðaskóli var sérskóli í Reykjavík fyrir nemendur á grunnskólaaldri. Haustið 1961 ákváðu fræðsluyfirvöld Reykjavíkur að koma upp sérskóla fyrir vangefin börn og mjög tornæm. Skólinn var til húsa í Ármannsheimilinu. Árið 1963 voru þar um 60 börn í sex bekkjardeildum. Magnús Magnússon var skólastjóri Höfðaskóla. Haustið 1975 flutti skólinn í nýtt húsnæði og var nafni hans þá breytt í Öskjuhlíðarskóli.
Heimildir
breyta- Vikan, 35. Tölublað (27.08.1970), Blaðsíða 10
- Menntamál, 2. Tölublað (01.12.1963), Blaðsíða 192
- Morgunblaðið, 93. tölublað (27.04.1966), Blaðsíða 12
- Dagblaðið (21.01.1976, Blaðsíða 23
Þessi skólagrein sem tengist Reykjavík er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.