Golden Gate
(Endurbeint frá Gullna hliðið)
Golden Gate (á íslensku Gullna hliðið) er sund í Bandaríkjunum á milli San Francisco-flóa og Kyrrahafs. Golden Gate-brúin hefur brúað sundið frá árinu 1937. Sundið er þekkt fyrir dýpt sína og kröftuga hafstrauma frá Kyrrahafinu.