Gulbrandsætt (fræðiheiti: Entylomataceae) er ætt sjúkdómsvaldandi sveppa. Sveppir af gulbrandsætt sýkja blöð plantna og mynda á þeim bletti af ýmsum litum. Gulbrandsætt inniheldur aðeins eina ættkvísl, Entyloma með um 150 tegundum, þar af lifa fjórar á Íslandi.[1]

Gulbrandsætt
Sóleyjagulbrandur á blaði vörtusóleyjar.
Vísindaleg flokkun
Ríki: Sveppir (Fungi)
Fylking: Kólfsveppir (Basidiomycota)
Flokkur: Lyngroðasveppir (Exobasidiomycetidae)
Ættbálkur: Gulbrandsbálkur (Entylomatales)
Ætt: Gulbrandsætt (Entylomataceae)
Ættkvíslir

Entyloma

Gulbrandsætt taldist áður til sótsveppa en er nú talin vera skyldari sveppum af lyngroðabálki.[1]

Tegundir á Íslandi

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. 1,0 1,1 1,2 1,3 1,4 Helgi Hallgrímsson. 2010. Sveppabókin. Skrudda, Reykjavík. ISBN 978-9979-655-71-8
  2. Helgi Hallgrímsson & Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2004). Íslenskt sveppatal I - smásveppir. Geymt 17 október 2020 í Wayback Machine Fjölrit Náttúrufræðistofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands. ISSN 1027-832X
   Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.