Guðbrandur Hlíðar
Guðbrandur Einar Hlíðar (9. nóvember 1915 - 31. desember 2000) var dýralæknir í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1935 og dýralæknaprófi frá Dýralæknaháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1944.
Sambýlismaður Guðbrands frá árinu 1956 var Sven Bertil Herder Andersson, danskennari og gerlafræðingur. Þeir gengu í staðfesta samvist árið 1996.[1]
Ásgeir Guðmundsson skráði æviminningar hans og komu þær út í bókinni Eyrnatog og steinbítstak hjá Skjaldborg árið 1992.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Merkir Íslendingar - Guðbrandur Einar Hlíðar“, Morgunblaðið, 9. nóvember 2015.