Gråkallen
Gråkallen er fjall á útivistarsvæðinu Bymarka í borginni Þrándheimi í Þrændalögum í Noregi. Fjallið er 552 m hátt og er í borgarhlutanum Byåsen. Á fjallinu eru aflögð fjarskiptamannvirki hersins.
Strætisvagn gengur frá Þrándheimi að skíðamiðstöð við fjallið. Á sumrin er aðstaðan notuð til gönguferða og hjólaferða frá fjallinu að borginni fyrir neðan.
Nafnið Gråkallen þýðir grái kallinn.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Gråkallen.