Goðn
Goðn (danska: Gudenå eða Gudenåen) er fljót á Jótlandi í Danmörku og er lengst fljóta þar í landi, 158 km.
Fljótið Goðn í rímþraut
breytaÍ gamalli rímþraut var reynt að ríma á móti orðunum Boðn og Hveðn:
- Seint mun þverra Són og Boðn,
- seint munu Danir vinna Hveðn.
Sveinbjörn Egilsson leysti þessa rímþraut á 19. öld með botninum:
- Fyrr mun laxinn flýja úr Goðn,
- og Finnum öllum sneiðast héðn.