Goðafossstrandið 1916
Goðafossstrandið 1916 var skipstrand á Straumnesi við Aðalvík. Þann 30. nóvember 1916 strandaði gufuskip Eimskipafélagsins, Goðafoss, á Straumnesi. Farþegar og áhöfn björguðust eftir meira en tveggja sólarhringa vist í skipinu í ofsaveðri en skipið brotnaði í fjörunni. Skipið strandaði klukkan 3 um nótt og var hópur skipverja sendur í birtingu til Aðalvíkur eftir aðstoð. Voru þá 60 manns í skipinu. Þegar veður lægði komu vélbátar frá Aðalvík og björguðu fólkinu. Jökull Jakobsson samdi leikritið Hart í bak um það skipsstrand.
Heimildir
breyta- Lesbók Morgunblaðsins, 5. tölublað (07.02.1987), Blaðsíða 6-7
- Frá ystu nesjum, Gils Guðmundsson, önnur útgáfa, 3. bindi bls. 254-263 og bls. 213-254, 1982.
- Gunnar Friðriksson , Mannlíf í Aðalvík, bls. 30-34, 1990.
- Vestfirzkir slysadagar, síðara bindi bls. 145-148, Eyjólfur Jónsson, 1996