Gneis[1] er myndbreytt berg orðið til úr ýmsum bergtegundum við mikinn þrýsting og hátt hitastig í fellingafjöllum. Gneis er samsett af sömu bergtegundum eins og granít, en þar er meira af glimmer en minna af feldspati. Gneis einkennist af dökkum og ljósum böndum.