Giovanni Boccaccio
Giovanni Boccaccio (16. júní 1313 – 21. desember 1375) var ítalskur rithöfundur frá Flórens, lærisveinn Petrarca og einn af helstu höfundum Endurreisnartímans á Ítalíu. Hann er einkum frægur fyrir Tídægru (ítalska: Decamerone), sem er safn skemmtisagna sem sumar hverjar eiga sér uppruna í alþýðilegri sagnahefð.