Geirangursfjörður
Geirangursfjörður (norska: Geirangerfjorden) er norskur fjörður sem gengur inn úr Stórfirði við Álasund í Noregi. Hann er rómaður fyrir náttúrufegurð, m.a. fossana Sjö systur og Brúðarslörið. Hann er á heimsminjaskrá UNESCO.
Þorpið Geirangur liggur í firðinum.