Francis Schaeffer
Francis August Schaeffer var amerískur evangelískur kirkjuleiðtogi, trúarlegur heimspekingur og rithöfundur. Hann var þekktastur fyrir að stofna með konu sinni, Edith Seville Schaeffer, L´Abri sem var evangelískt trúarsamfélag með búsetu í Sviss.
Francis A. Schaeffer | |
---|---|
Fæddur | 30. janúar 1912 |
Dáinn | 15. maí 1984 (72 ára) |
Störf | Evangelískur kirkjuleiðtogi, trúarlegur heimspekingur og rithöfundur |
Maki | Edith Seville Schaeffer |
Börn | Priscilla Sandri, Susan Macaulay, Deborah Middelmann, Frank Schaeffer |
Æfi
breytaFrancis var fæddur í Bandaríkjunum og stundaði nám í Hampden sydney háskóla þar sem hann útskrifaðist árið 1935 og giftast hann Edith Seville það sama ár. Francis fór síðan í prestaskóla í Baltimore sem hét Faith Theological Seminary þar sem hann útskrifaðist árið 1938. Hann starfaði svo sem prestur í Pennsylvaníu og Missouri en flutti síðan til Sviss árið 1948 þar sem hjónin stofnuðu L´Abri samtökin árið 1955. Samtökin vöktu mikla athygli og þá sérstaklega hjá ungu fólki. Þau voru síðan stækkuð og voru þau þá í Svíþjóð, Frakklandi, Hollandi, Kanada, Bretlandi og Bandaríkjunum. Francis hélt áfram að starfa að samtökunum þar til hann dó úr krabbameini árið 1984.
Áhrif á pólitík
breytaFrancis hafði mikil áhrif á að koma fylgjendum mótmælendatrúar til áhrifa í pólitík á áttunda og níunda áratugnum. Aðal baráttumál hans var að berjast gegn fóstureyðingu og kom hann skoðunum sínum gegn fóstureyðingu á framfæri með bók sinni A Christian Manifesto ásamt bók og kvikmyndaseríu að nafni Whatever Happened to the Human Race. A Cristian Manifesto sem gefin var út árið 1981 af Francis var ætluð til þess að sporna gegn Kommúnistaávarpinu og var álit Francis í að ástæðan fyrir vandamálum veraldar væri vegna þess að samfélagið væri að víkja frá kristnu hugarfari.
Tenglar
breytaHeimildir
breytaFyrirmynd þessarar síðu var síðan um Francis Schaeffer á ensku Wikipedia