Framvirkur samningur

Framvirkir samningar er ein tegund afleiða þar sem einn aðili hefur gert samning við annan um skylduna til þess að eiga viðskipti um einverja tiltekna undirliggjandi eign á ákveðnum degi í framtíðinni við fyrirfram ákveðnu verði

Framvirkir samningar eru öðruvísi en valréttarsamningar að því leiti að þeir kveða á um skyldu til að eiga viðskipti en ekki valið um það hvort af viðskiptinum verði eða ekki.

Halldór og Inga semja um það 1. júlí að þann 31. desember muni Halldór selja Ingu bréf fyrir 100.000 krónur að nafnvirði í Íslandsbanka á genginu 10, það er fyrir 1 milljón króna. Verðmæti slíks samnings fer eftir því hvernig markaðsvirðið þróast. Ef gengið er hærra en 10 þann 31. desember þá hefur samningurinn jákvætt virði fyrir Ingu á þeim degi en neikvætt fyrir Halldór. Halldór verður þó að standa við samninginn, ólíkt því sem ætti við ef Halldór hefði keypt sölurétt á bréfin af Ingu, þá myndi hann ekki nýta söluréttinn ef gengið á markaði væri hærra en 10.

Vörn gegn áhættu

breyta

Framvirka samninga er hægt að nýta sem vörn gegn áhættu. Hugsum okkur til dæmis fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi sem er með útgjöld í krónum en tekjur í evrum. Það gefur út verðskrá í evrum að vori og selur þjónustu yfir sumarið. Þegar sumarið er gert upp að hausti þarf það að greiða starfsmönnum og birgjum í krónum með evrunum sem það fékk. Ef gengi evrunnar gagnvart krónu lækkar á þessum tíma(þ.e. gengi krónunnar styrkist) þá verður fyrirtækið fyrir gengistapi. Ef tekjurnar eru til dæmis 1 milljón evra og gengi evrunnar lækkar úr 90, því sem fyrirtækið gerði ráð fyrir, í 80, þá verða tekjur þess í krónum 10 milljónum lægri en gert var ráð fyrir.

Hægt væri að verja sig gegn þessu með því til dæmis að gera framvirkan samning við banka að vori um sölu á milljón evrum á tilteknu gengi að hausti. Þá væri framvirki samningurinn vörn gegn gengisáhættu. Gallinn við vörnina er að hún getur verið dýr en það fer þó eftir því hvaða verði samið er um. Þannig er samningur um sölu á 90 dýrari en samningur um sölu á 80 enda sá síðari allt að 10 milljónum króna verðmætari þegar upp er staðið. Ef gengið er 70 þegar upp ef staðið þá er samningur um sölu evru á 90 krónur 20 milljóna króna virði en samningur um sölu á 80 einungis 10 milljóna króna virði.

Framvirkur samningur um sölu á evru ver fyrirtækið gegn gengisfalli evrunnar en það nýtur ekki gengishækkunar. Ef fyritækið vildi eiga möguleika á því gæti það gert valréttarsamning um sölu á evru.

Tilvísanir

breyta