Forseti Austurríkis
Forseti Austurríkis er þjóðhöfðingi Austurríkis. Að nafninu til fer hann með mikil völd, samkvæmt stjórnarskrá Austurríkis, en í reynd eru völd hans að mestu leyti táknræn. Forsetaembættið var stofnað í kjölfar þess að Austurrísk-ungverska keisaradæmið var lagt niður 1921, eftir ósigur þess í fyrri heimsstyrjöld. Frá 1951 hefur forsetinn verið kosinn í almennri kosningu til sex ára í senn. Síðan þá hefur forsetinn ýmist kjörinn úr röðum sósíaldemókrata eða Þjóðarflokksins, með þeirri undantekningu að núverandi forseti, Alexander Van der Bellen, kemur úr röðum Græningja.
Aðsetur forsetans er í Leópoldsálmunni í Hofburg-höll í Vínarborg.
Forsetar Austurríkis frá stofnun 2. lýðveldisins
breytaRöð | Forseti | Tímabil | Ath. |
---|---|---|---|
1 | Karl Renner | 1945-1950 | Lést í embætti |
2 | Theodor Körner | 1951-1957 | Lést í embætti |
3 | Adolf Schärf | 1957-1965 | Lést í embætti |
4 | Franz Jonas | 1965-1974 | Lést í embætti |
5 | Rudolf Kirchschläger | 1974-1986 | Óflokksbundinn |
6 | Kurt Waldheim | 1986-1992 | Var áður aðalritari Sameinuðu þjóðanna |
7 | Thomas Klestil | 1992-2004 | Lést í embætti |
8 | Heinz Fischer | 2004-2016 | |
9 | Alexander Van der Bellen | Síðan 2016 |