Fornpersneska

(Endurbeint frá Forn–persneska)

Fornpersneska er annað tveggja forníranskra mála sem þekkt eru (hitt er avestanska). Hún er forveri miðpersnesku sem var töluð í valdatíð Sassanída. Hún er að mestu þekkt af leirtöflum og innsiglum frá valdatíð Akkamenída, frá um 600 til 300 f.o.t. Slíkar leirtöflur hafa fundist frá því sem í dag eru löndin Íran, Rúmenía, Armenía, Barein, Írak, Tyrkland og Egyptaland. Líkt og önnur persnesk mál var fornpersneska kölluð ariya „íranska“.

Fornpersneska
Heimshluti Íran til forna
Ætt Indóevrópskt

 Indóíranskt
  Íranska
   Vesturíranskt
    Suðvesturíranskt
     Fornpersneska

Tungumálakóðar
ISO 639-1 peo
ISO 639-2 peo
SIL peo
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Við fyrstu sýn líkist fornpersneska letrið fleygrúnum Súmera og Akkadíubúa, af því það er samsett úr fleyglaga táknum sem hafa verið pressuð í leir eða höggvin í stein. Lögun og gerð táknanna hefur þó enga beina samsvörun við eldri málin. Fornpersar héldu í fleygrúnarformið einfaldlega vegna hefðarinnar og hugsanlega þar sem það var auðveld leið til að letra í leirplötur og á steinveggi.

Fræðimenn í dag eru flestir sammála að fornpersneska hafi verið fundin upp um 525 f.o.t. til að letra á minnsvarða um afrek kóngsins Dareiosar fyrsta, sem voru reistir í Behistum. Hann lét hanna sérstakt persneskt stafróf af þessu tilefni.

Fundist hafa áletranir, töflur og innsigli með fornpersnesku letri í Íran, Tyrklandi og Egyptalandi. Það þróaðist yfir í miðpersnesku, sem líka er þekkt sem pahlavíska, og svo að lokum yfir í nútímapersnesku.

Fornpersneska flokkast sem hljóðletur þar sem meirihluti táknanna eru hljóðtákn. En það inniheldur einnig myndletur. Það hefur einungis þrjá sérhljóða: a, i og u. Stakir samhljóðar sem eru hluti af samhljóðaröð eða eru endi á atkvæði eru ritaðir sem hljóðtákn eins og þeir stæðu með sérhljóðanum a. Þetta hefur verið gert til að auðvelda ritunina en þegar lesið er úr tákninu (sem hluta af orði) fellur a-hljóðið burt.

Fornpersneska er elsta þekkta persneska tungumálið, sem flokkast til vesturíranskra tungumála. Miðperskneska (pahlavíska) og nútímapersneska (íranska) hafa þróast beint frá fornpersnesku. Í dag er persneska rituð með persnesk-arabísku letri.

Nöfn konunga höfðu mikla þýðingu þegar kom að því að ráða úr letrinu. Tilraunir til að ráða úr fornpersneskum fleygrúnum hófust um 1711 þegar áletranir Dareiosar voru birtar af ferðalangnum Jean Chardin. Árið 1802 áttaði Friedrich Münter sig á því að ákveðnar letursamsetningar hlutu að vera orðið „kóngur“. Georg Fredrich Grotefend hélt svo áfram með verkið og áttaði svo á því að eftir konunganöfnum var oft þessi texti „mikli konungur“, „konungur konunguna“ og nafn föður konungsuns. Áframhaldandi ráðning letursins byggðist á vinnu Grotefends og um 1847 höfðu flest táknin verið ráðin.