Mozilla Firefox eða einfaldlega Firefox (áður þekktur sem Phoenix og Mozilla Firebird) er vafri, þróaður af Mozilla Foundation og hundruðum sjálfboðaliða. Vafrinn, sem fellur undir hugtakið opinn hugbúnaður, á að mæta þörf fólks á vafra sem er lítill, hraður og einfaldur. Firefox býr einnig yfir viðbótarkerfi sem gerir fólki mögulegt að sníða vafrann að þörfum sínum. Samkvæmt StatCounter er Firefox árið 2019 annar vinsælasti vinsælasti vafri heims á eftir Chrome á hefðbundnum PC tölvum.[2] Hann er líka til á t.d. Android, og á öllum tölvum samanlagt t.d. með iOS líka, er Firefox í þriðja sæti á eftir Chrome og Safari.

Mozilla Firefox
Firefox logo, 2019.svg
Firefox 57 Windows.png
Firefox 57.0 á Windows 10
HöfundurMozilla Corporation
HönnuðurMozilla Corporation
Mozilla Foundation
Fyrst gefið út9. nóvember, 2004
Nýjasta útgáfa76.0.1[1] og 68.8.0esr / 8. maí 2020
StýrikerfiWindows 7 og nýrra
Mac OS X
Linux
BSD
Solaris
OpenSolaris
Tungumál í boði90 tungumál
Notkun Vafri
FTP-biðlari
Vefsíða www.mozilla.com/firefox

Útgáfan fyrir Android ("Firefox for Android") verður studd til 2020, en þá hefur verið ákveðið að hætta við stuðningi við þá útgáfu í núverandi mynd. Nýr vafri Fenix hefur verið kynntur í stað hans fyrir Android með nýtt viðmót.

SagaBreyta

 
Forsíða íslensku Wikipediunnar á Firefox sem keyrir á tölvu með Ubuntu Netbook Remix

Firefox byrjaði sem tilraun hjá Dave Hyatt og Blake Ross í Mozilla-verkefninu. Þann 3. apríl 2003 kynnti Mozilla Organization að þeir ætluðu að breyta áherslunni frá Mozilla Suite í Firefox og Thunderbird. Verkefnið hefur síðan skipt um nafn nokkrum sinnum. Í upphafi hét það Phoenix en var endurnefnt út af Phoenix Technologies. Í staðinn kom Firebird en var skipt yfir í Mozilla Firebird til að rugla ekki saman við Firebird free database software project. Vegna pressu frá Firebird skiptu þeir þann 9. febrúar yfir í Mozilla Firefox.

Firefox var í mörgum útgáfum áður en útgáfan 1.0 kom út þann 9. nóvember 2004. 24. október 2006 gaf Mozilla út Firefox 2.

Firefox er sá vafri sem lengst af studdi Windows XP (af stóru nöfnunum í vafraheiminum). T.d. hætti Microsoft að styðja Windows XP fyrr (og þar með varð Internet Explorer 11 tæknilega óstuddur þar, þó hann sé enn studdur á t.d. Windows 10).

AnnaðBreyta

HeimildirBreyta

TenglarBreyta

   Þessi hugbúnaðargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.