Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi eða FVA er fjölbrautaskóli, staðsettur á Akranesi og var stofnaður á grunni Gagnfræðiskólans á Akranesi og Iðnskólans á Akranesi 12. september 1977.
Skólinn býður upp á alhliða framhaldsmenntun, bóklega og verklega, á mörgum námsbrautum. Hann veitir öfluga námsráðgjöf og leggur mikla áherslu á að styðja nýnema.
Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur frá upphafi starfað eftir áfangakerfi og átt drjúgan þátt í mótun þess. Áfangakerfið gerir skólanum kleift að taka tillit til einstaklinga með ólíkar þarfir og misjafna getu til náms.
Við skólann er heimavist fyrir 64 nemendur og mötuneyti fyrir alla nemendur skólans. Skólaakstur er milli Akraness og Borgarness.
Héraðsskólinn í Reykholti var á tímabili rekinn sem útibú Fjölbrautaskóla Vesturlands en skólinn rak einnig útibú á Snæfellsnesi. Þau voru lögð niður eftir að stofnaður var framhaldsskóli í Grundarfirði.
Við FVA stunda að jafnaði um 600 nemendur nám á önn hverri.
Námsframboð
breyta- Bóknámsbrautir til stúdentsprófs: félagsfræðabraut, málabraut, náttúrufræðibraut, viðskipta- og hagfræðibraut.
- Viðbótarnám til stúdentsprófs af starfsnámsbrautum.
- Listnámsbraut með tónlistarkjörsvið
- Iðnnám á verknámsbrautum: húsasmíði, málmiðnir, rafiðnir.
- Nám til iðnmeistaraprófs.
- Starfstengt nám: sjúkraliðabraut, tölvufræðibraut, viðskiptabraut.
- Almenn námsbraut.
- Starfsbraut fyrir fatlaða.