Félag grunnskólakennara
Félag grunnskólakennara er fag- og stéttarfélag grunnskólakennara á Íslandi. Hlutverk þess er málsvörn þeirra tæplega 5.400 félagsmanna Kennarasambands Íslands sem sinna kennslu eða ráðgjöf í grunnskólum. Félagið er fjölmennasta aðildarfélag Kennarasambands Íslands.[1]
Með stofnun félagsins í nóvember 1999 sameinuðust allir grunnskólakennarar landsins í fyrsta sinn í einu félagi.[2][3]
Félagið heldur aðalfund fjórða hvert ár. Hin árin er efnt til ársfundar.[4] Félagið gefur reglubundið út „Eplið“ sem er rafrænt upplýsingarit fyrir félagsmenn. Það er aðgengilegt á vef félagsins.[5]
Formaður Félags grunnskólakennara er Mjöll Matthíasdóttir.[6][7][8]
Svæðafélög
breytaSvæðafélög eru grunneiningar Félags grunnskólakennara. Svæðafélögunum er ætlað að vera málsvari félagsmanna hvert á sínu svæði og fara með hagsmuni þeirra í samskiptum við skólana og vinnuveitendur. Þá koma þau að koma að gerð vinnustaðasamninga í samráði við stjórn Félags grunnskólakennara.[9]
Svæðafélögin starfa á eftirtöldum stöðum og svæðum:
- Bandalag kennara á Norðurlandi eystra (BKNE)
- Kennarafélag Mosfellsbæjar, Seltjarnarness og Kópavogs (KMSK)
- Kennarafélag Reykjaness (KR)
- Kennarafélag Reykjavíkur (KFR)
- Kennarafélag Suðurlands (KS)
- Kennarafélag Vestmannaeyja (KV)
- Kennarafélag Vesturlands (KFV)
- Kennarasamband Norðurlands vestra (KSNV)
- Kennarasamband Austurlands (KSA)
- Kennarasamband Vestfjarða (KSV)
Tenglar
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Íslands, Kennarasamband. „Félag grunnskólakennara“. Kennarasamband Íslands. Sótt 10. ágúst 2023.
- ↑ „Dagur - 216. tölublað - Blað 1 (12.11.1999) - Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 10. ágúst 2023.
- ↑ „Morgunblaðið - 257. tölublað (11.11.1999) - Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 10. ágúst 2023.
- ↑ Íslands, Kennarasamband. „Lög félagsins“. Kennarasamband Íslands. Sótt 10. ágúst 2023.
- ↑ Íslands, Kennarasamband. „Fréttabréf FG og myndbönd“. Kennarasamband Íslands. Sótt 10. ágúst 2023.
- ↑ „Skólavarðan - 2. tölublað (2022) - Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 10. ágúst 2023.
- ↑ Íslands, Kennarasamband. „Stjórn“. Kennarasamband Íslands. Sótt 10. ágúst 2023.
- ↑ „Sitjandi formaður Félags grunnskólakennara felldur - RÚV.is“. RÚV. 7. maí 2022. Sótt 10. ágúst 2023.
- ↑ Íslands, Kennarasamband. „Lög félagsins“. Kennarasamband Íslands. Sótt 10. ágúst 2023.