Dynkur
Dynkur er foss í Þjórsá suðaustan undir Kóngsási á Flóamannaafrétti. Hann er um 38 m hár. Þjórsá fellur þar fram af mörgum stöllum í smáfossum sem til samans mynda eitt fossakerfi. Holtamenn kalla hann Búðarhálsfoss en Gnúpverjar kalla hann Dynk. Best er að skoða fossinn frá eystri bakka Þjórsár og aka þá inn Búðarháls frá brúnni á Tungnaá við Hald.[1]
Áform um uppistöðulón ofan við fossinn til að sjá Norðlingaölduveitu fyrir vatni myndi minnka rennsli í fossinn. Þegar hefur rennsli minnkað vegna breyttra árfarvega. [2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Dynkur[óvirkur tengill] Suðurland. Skoðað 21. janúar 2016.
- ↑ Fossinn Dynkur á förum Mbl.is. Skoðað 21. janúar 2016.