Dunfermline
Dunfermline (skosk gelíska: Dùn Phàrlain) er borg í Fife, Skotlandi. Íbúar eru um 59.000 (2020) en á stórborgarsvæðinu eru 76.000. Borgin var eitt sinn höfuðstaður Skotlands og var þar aðsetur skosku konungsfjölskyldunnar.
Dunfermline Athletic er knattspyrnulið borgarinnar.
Þekktir íbúar
breyta- Davíð 2. Skotakonungur
- Jakob 6. Skotakonungur
- Andrew Carnegie, bandarískur iðnjöfur af skoskum ættum
- Ian Anderson, tónlistarmaður úr Jethro Tull
- Stuart Adamson, söngvari Big Country