Döggskór
Döggskór eru nokkurskonar hettur neðst á sverðslíðrum, bæði til skrauts og varnar. Þeir geta verið úr málmi, leðri, plasti eða gúmmíi. Döggskór úr málmi eru oft fagurlega skreyttir og má rekja sögu þeirra aftur á bronsöld.
Döggskór frá víkingaöld á Íslandi
breytaSjö döggskór hafa fundist á Íslandi og teljast allir vera frá 9. og 10. öld. Einn þeirra fannst í kumli á Hafurbjarnarstöðum, einn á bæjarrústum á Hrísheimum í Mývatnssveit en hinir fimm eru lausafundir, frá Ljárskógum í Dölum, Kirkjubólsdal í Arnarfirði, Tannstaðabakka í Hrútafirði, Lundi í Fnjóskadal og óþekktum stað á Vestfjörðum.[1]
Allir döggskórnir sem fundist hafa hér á landi eru úr bronsi. Þeir eru á bilinu 5,7 – 8,0 cm á hæð og allir skreyttir. Á þremur er skreytið í svokölluðum Jalangursstíl, tveir í Borróstíl og tveir með ótilgreindum en líkum stíl og taldi Kristján Eldjárn þann stíl vera íslenska nýmyndun leidda af Borróstíl.[2]
Á víkingaöld voru döggskór, eins og þeir sem fundist hafa á Íslandi, algengastir í kringum Eystrasalt en mjög fáir döggskór hafa t.d. fundist í Noregi. Á Íslandi er hlutfall sverða og döggskóa um það bil 3:1 en í Noregi er það nálægt 400:1. Döggskórnir eru því til marks um að þessi austræna tíska hafi fest rætur á Íslandi. [3]
-
Döggskór
-
Nokkur sverð frá víkingatíma
Tilvísanir
breytaHeimildir
breyta- Batey, Colleen. 2003. 'The finds', Hrísheimar 2003. Interim report, ed. Ragnar Edvardsson, Fornleifastofnun Íslands FS223, Reykjavík.
- Kristján Eldjárn. 2000. Kuml og haugfé. Reykjavík: Mál og menning, Fornleifastofnun Íslands og Þjóðminjasafn Íslands.
- http://ordabanki.hi.is/wordbank/terminfo?idTerm=332941
- http://ordabanki.hi.is/wordbank/terminfo?idTerm=501871&mainlanguage=IS
- http://www.thjodminjasafn.is/media/fraedsla/Haugfe.pdf Geymt 27 nóvember 2013 í Wayback Machine
- http://www.ling.upenn.edu/~kurisuto/germanic/oi_cleasbyvigfusson_about.html