Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir (fædd í Reykjavík 2. ágúst 1956) er lögfræðingur hjá Læknafélagi Íslands.
Stjórnmálaþáttaka
breytaDögg varð fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður eftir Alþingiskosningarnar árið 2007. Hún tók tvívegis sæti á Alþingi veturinn 2007 – 2008. Hún lenti í 6 sæti í prófkjörinu árið 2009 í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Fjárfestingafélagið Insolidum
breytaFjárfestingafélagið Insolidum, sem var í eigu Daggar og sonar hennar, Páls Ágústs Ólafssonar, varð gjaldþrota og dæmt í Hérðasdómi og hæstarétti til að greiða Saga Capital tæpar 300 miljónir króna. Snérist málið um lán sem Insolidum tók hjá Saga Capital í júlí 2007 til kaupa á stofnfjárbréfum í SPRON. Bankinn gjaldfelldi lánið og setti í innheimtu þar sem eigendur Insolidum gátu ekki reytt fram frekari tryggingar fyrir því eftir að stofnfjárbréfin í SPRON féllu allverulega í verði.[1]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Insolidum skal borga Saga Capital“. mbl.is. Sótt 3. maí 2014.