Clannad var írsk hljómsveit sem stofnuð var árið 1970 í Gweedore, County Donegal, Írlandi. hljómsveitin spilaði blöndu af írskri þjóðlagatónlist og nýaldartónlist. Hljómsveitin blandaði einnig í seinni tíð poppi, jazzi og gregórískum söng í tónlistina. Hljómsveitin var stofnuð af systkinunum Moya Brennan, Ciarán Brennan og Pól Brennan ásamt frændum þeirra; tvíburabræðrunum Noel Duggan og Pádraig Duggan. Árin 1980–1982 var yngri systir Brennan systkina, Enya, með hljómsveitinni en hún hóf árangursríkan sólóferil eftir veru sína í bandinu. Clannad syngur á aðallega á gelísku og ensku. Lag þeirra, Theme from Harry's Game, er eina topplagið í Bretlandi sem hefur alfarið verið sungið á gelísku.

Clannad á Leeds Folk Festival árið 1982.
Clannad á sviði.
Moya Brennan.
Noel Duggan
Pádraig Duggan.

Árið 2020 hugðist hljómsveitin halda kveðjutúr en hann frestaðist vegna Covid-19. Clannad spilaði síðustu tónleika sína í Royal Albert Hall árið 2024.

Meðlimir

breyta
  • Ciarán Brennan: Bassi, gítar, hljómborð, mandólín og söngur.
  • Moya Brennan: Söngur og harpa.
  • Pól Brennan: Flauta, gítar, ásláttarhljóðfæri og söngur.
  • Noel Duggan : Gítar og söngur.

Fyrrum meðlimir

breyta
  • Pádraig Duggan (1949–2016, dáinn): Gítar, mandóla, mandólín og söngur.
  • Enya Brennan (1980-1982): Söngur, hljómborð og ásláttarhljóðfæri.

Breiðskífur

breyta
  • 1973: Clannad
  • 1975: Clannad 2
  • 1976: Dúlamán
  • 1980: Crann Úll
  • 1981: Fuaim
  • 1983: Magical Ring
  • 1984: Legend
  • 1985: Macalla
  • 1987: Sirius
  • 1989: Atlantic Realm
  • 1989: The Angel and the Soldier Boy
  • 1990: Anam
  • 1993: Banba
  • 1996: Lore
  • 1997: Landmarks
  • 2013: Nádúr