Central Park
almenningsgarður í Manhattan í New York-borg í Bandaríkjunum
Central Park (eða Miðgarður) er almenningsgarður í miðju Manhattan í New York-borg í Bandaríkjunum. Garðurinn var hannaður af landslagsarkitektinum Frederick Law Olmsted og var fyrst opnaður árið 1857. Garðurinn er rekinn af sjálfseignarstofnuninni, Central Park Conservancy. Hann var skráður sem bandarískt sögulegt kennileiti árið 1966. Innan Central Park er dýragarður, skemmti- og veitingastaðir, vötn og tjarnir, klettar, göngustígar og hjólabrautir og fleira. Hann er 341 hektarar að stærð eða 3,4 km².
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Central Park.