Brautarhóll í Svarfaðardal
Brautarhóll er bær í Svarfaðardal austan Svarfaðardalsár um 6 km frá Dalvík og skammt sunnan við kirkjustaðinn á Völlum. Jörðin var í fyrstu hjáleiga sem byggð var úr heimalandi Valla. Árið 1525 var hún orðin lögbýli og nefndist þá Brautarholt og var ein af Vallajörðum allt fram á 20. öld.[1] Sigurður Kristjánsson skólastjóri á Laugum eignaðist jörðina á síðari hluta 20. aldar og stundaði þar búskap samhliða kennslustörfunum. Síðan bjó hann þar öll sín efri ár ásamt konu sinni Stefaníu Jónasdóttur. Núverandi bóndi á Brautarhóli er sonur þeirra hjóna, Sigurður Bjarni.
Brautarhóll í Svarfaðardal | |
---|---|
Land | Ísland |
Sveitarfélag | Dalvíkurbyggð |
breyta upplýsingum |
Hugrún skáldkona (Filippía Kristjánsdóttir) er uppalin á Brautarhóli. Hún orti meðal annars kvæðið Svarfaðardalur sem er héraðssöngur Svarfdælinga.
Tilvísanir
breyta- ↑ Stefán Aðalsteinsson (1976). Svarfdælingar. Iðunn, Reykjavík. bls. 127.