Garðakál
(Endurbeint frá Brassica oleracea)
Garðakál (fræðiheiti Brassica oleracea) er káltegund upprunnin við strendur Suður- og Vestur-Evrópu. Það þolir vel salt og kalk en illa samkeppni frá öðrum jurtum. Garðakál er stór tvíær jurt sem myndar breið og þykk græn blöð sem geyma vatn og næringarefni fyrir blómgunina sem fer fram á seinna árinu. Vitað er að garðakál var ræktað á tímum Forngrikkja og Rómverja og hefur líklega verið orðið vel þekkt sem grænmeti löngu fyrir þann tíma. Til er fjöldinn allur af afbrigðum garðakáls, svo sem grænkál, hvítkál, blómkál, spergilkál, rósakál og skrautkál.
Garðakál | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Villt garðakál
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Brassica oleracea L. |
Tenglar
breyta- Kál - brakandi og ferskt(Vilmundur Hansen, Bændablaðið, 28. ágúst 2017)
- Ragnar Ásgreisson, Um káltegundir, Morgunblaðið - 59. tölublað (15.03.1944)
- Helstu matjurtir sem rækta má utandyra á Íslandi (Lystigarður Akureyrar)[óvirkur tengill]
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist garðakáli.
Wikilífverur eru með efni sem tengist garðakáli.