Bjarni Harðarson (fæddur í Hveragerði 25. desember, 1961) er bóksali og fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins. Hann var kjörinn á þing 2007 sem áttundi þingmaður Suðurkjördæmis.

Bjarni Harðarson
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
2007 2008  Suðurkjördæmi  Framsóknarfl.
Persónulegar upplýsingar
Fæddur25. desember 1961 (1961-12-25) (62 ára)
Hveragerði
Vefsíðahttp://www.bjarnihardar.blog.is/blog/bjarnihardar/
Æviágrip á vef Alþingis

Bréfið

breyta

Þann 10. nóvember 2008 kom upp hneykslismál þegar Bjarna urðu á þau mistök að senda skeyti ætlað aðstoðarmanni hans til allra fjölmiðla Íslands, þar sem hann vildi láta áframsenda nafnlaust bréf þriðja aðila þar sem kom fram sterk gagnrýni á Valgerði Sverrisdóttur varaformann Framsóknarflokksins.[1] Daginn eftir sagði Bjarni af sér þingmennsku.[2]

Tilvísanir

breyta
  1. www.visir.is
  2. Mbl.is

Tenglar

breyta
   Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.