Birkimerla
Birkimerla (fræðiheiti: Caloplaca borealis) er hrúðurflétta af glæðuætt (Teloschistaceae). Hún vex á trjáberki. Á Íslandi hefur hún aðeins fundist á örfáum stöðum, alltaf á berki birkitrjáa.[2] Birkimerla finnst í Botnsskógi í Dýrafirði.[3]
Birkimerla | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Caloplaca borealis |
Útlit
breytaÞal birkimerlu er reitaskipt og vörtótt þar sem vörturnar litast gular vegna parietíns en þalið milli reitanna er hvítleitt eða grátt.[2]
Efnafræði
breytaBirkimerla inniheldur fléttuefnið parietín sem litar fléttuna gula eða appelsínugula. Þalsvörun birkimerlu við efnalitun er K neivæð (K-) en askhirlsurnar litast K+ rauðar.[2]
Ástand stofns
breytaBirkimerla er á válista Náttúrufræðistofnunar Íslands sem tegund í yfirvofandi hættu (VU).[1] Ástand birkimerlu hefur ekki enn verið metið af IUCN.
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Náttúrufræðistofnun Íslands (1996). Válisti 1: Plöntur. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 Hörður Kristinsson (2016). Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag. ISBN 978-9979-66-347-8
- ↑ Flóra Íslands (án árs). Birkimerla - Caloplaca borealis. Sótt þann 7. janúar 2019.