Biblía 21. aldar
Biblía 21. aldar er ný heildarþýðing Biblíunnar á íslensku, sem kom út 19. október 2007. JPV útgáfa gaf hana út fyrir hönd Hins íslenska biblíufélags.
Saga
breytaUndirbúningur útgáfunnar hófst árið 1986, þegar Hið íslenska biblíufélag fékk dr. Sigurð Örn Steingrímsson og dr. Þóri Kr. Þórðarson til að gera tilraunaþýðingu á Jónasarbók og Rutarbók, og var dr. Guðrún Kvaran fengin til að vinna með þeim sem málfarsráðunautur. Verkinu lauk vorið 1988.
Haustið 1990 var gerður samstarsfssamningur milli Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands og Hins íslenska biblíufélags um að þýða að nýju Gamla testamentið, og komu á næstu árum út 9 kynningarhefti með þýðingu á öllum ritum þess. Aðalþýðandi var dr. Sigurður Örn Steingrímsson, en einnig komu að verkinu Jón Gunnarsson lektor, séra Árni Bergur Sigurbjörnsson, Þórir Kr. Þórðarson prófessor og Gunnlaugur A. Jónsson prófessor. Skipuð var nefnd til að fara yfir textana fyrir hönd Biblíufélagsins. Í nefndinni voru upphaflega Þórir Kr. Þórðarson (formaður), Árni Bergur Sigurbjörnsson, séra Gunnar Kristjánsson, Gunnlaugur A. Jónsson og Guðrún Kvaran, sem var fulltrúi Íslenskrar málnefndar. Síðar dró Þórir Kr. Þórðarson sig úr nefndinni; varð Guðrún Kvaran þá formaður og einnig kom séra Sigurður Pálsson inn í nefndina.
Í Biblíunni 2007 er birt þýðing á Apókrýfum bókum Gamla testamentisins, sem ekki höfðu verið í íslenskum biblíuútgáfum frá 1859. Var þar notuð þýðing Árna Bergs Sigurbjörnssonar frá 1994, nokkuð endurskoðuð.
Haustið 2001 var ákveðið að endurskoða og endurþýða texta Nýja testamentisins frá 1981, og í þýðingarnefnd voru þau kosin Jón Sveinbjörnsson (aðalþýðandi), Árni Bergur Sigurbjörnsson og Guðrún Kvaran. Árið 2003 kom Einar Sigurbjörnsson í nefndina í veikindum Árna Bergs. Ákveðið var að líta einkum til þeirra rita sem ekki höfðu verið þýdd 1981.
Þýtt var úr frummálunum, en einnig stuðst við eldri biblíuþýðingar íslenskar og nýlegar erlendar þýðingar Biblíunnar. Nefndunum var gert að þýða textann á vandað og aðgengilegt nútímamál, en hafa samt hliðsjón af íslenskri hefð í biblíumáli. Í fyrsta sinn var reynt að koma á málfari beggja kynja. Þannig er oftast sett systkin í stað bræður, ef verið er að ávarpa blandaðan hóp, en þess er þó getið neðanmáls hvað stendur í frumtexta.
Í Biblíunni 2007 er einnig ítarefni: nokkur kort, stutt greinargerð framan við öll rit Biblíunnar, skrá um mikilvæga ritningarstaði, yfirlit um tímatal og orðaskýringar.
Fyrsta prentun Biblíunnar 2007 er í tvenns konar broti. Stærra brotið er hægt að fá í svörtu rexinbandi eða rauðu flauelsbandi. Minna brotið fæst í svörtu, rauðu eða hvítu bandi.
Heimild
breyta- Sigurður Ægisson: Grein í Morgunblaðinu 28. október 2007.