Bergkristall
Bergkristall er kvarssteinn.
Lýsing
breytaBergkristall er kristallað afbrigði af kvarsi. Hann er litlaus, gegnsær og hefur oft vel formaða sexhliða pýramída í oddinn. Kristalsúlan oftast hvít- eða gráleit en oddurinn gegnsær. Stærðin er misjöfn, allt frá því að vera innan við mm og upp í tugi cm. Stærstu bergkristallar sem fundist hafa hérlendis eru 10-20 cm að lengd. Ametýst er litað afbrigði af bergkristal sem mikið er notað sem skrautsteinn og í skartgripi. Ametýst er sjaldgæft á Íslandi. Önnur litarafbrigði af bergkristal eru reykkvars og sítrín.
- Efnasamsetning: SiO2
- Kristalgerð: trígónal (hexagónal)
- Harka: 7
- Eðlisþyngd: 2,65
- Kleyfni: engin
Útbreiðsla
breytaBergkristal má finna sem holufyllingu neðst í hraunlagastafla og sem sprungufylling í háhitakerfum. Finnst djúpt í rofnum megineldstöðvum og sem sprungufylling inni í og við jaðra á djúpbergsinnskotum. Bergkristall finnst víða um land en hann er þó mun algengari í hinum eldri hluta berglagastaflans en þeim yngri.
Heimild
breyta- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2
- Þorleifur Einarsson (1994) Myndun og mótun lands: Jarðfræði. ISBN 9979-3-0263-1