Belgjastör
Belgjastör (fræðiheiti: Carex panicea) er stör sem á heimkynni sín víða í Norður- og Vestur-Evrópu. Jarðstöngull belgjastarar er með renglum. Stráið er grannt og blöðin flöt og styttri en stráið sjálft. Litur þeirra er grágrænn. Meðal einkenna belgjastarar er að stoðblöð kvenaxanna eru með löngu slíðri og axhlífarnar eru mósvartar. Belgjastör vex í mýrum um allt Ísland, þó ekki á Miðhálendinu.[1] Belgjastör líkist slíðrastör allmikið en slíðrastörin vex þó aðallega í þurrlendi.[2]
Belgjastör | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Carex panicea L. |
Tilvísanir
breyta- ↑ Akureyrarbær. „Flóra Íslands“. Lystigarður Akureyrar. Sótt 21. apríl 2023.
- ↑ „Flóra Íslands Flóran Blómplöntur“. www.floraislands.is. Sótt 21. apríl 2023.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Belgjastör.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Carex panicea.