Anaxímenes frá Lampsakos
(Endurbeint frá Anaximenes frá Lampsakos)
Anaxímenes frá Lampsakos (uppi um 380 – 320 f.Kr.) var grískur mælskufræðingur og sagnaritari, sem Alexander mikli hafði mikið dálæti á. Anaxímenes fylgdi Alexander í leiðangri þess síðarnefnda til Persíu. Hann skrifaði um sögu Grikklands og um Filippos II og epískt kvæði um Alexander (brot eru varðveitt hjá Muller (ritstj.) í Scriptores Rerum Alexandri Magni). Sem mælskufræðingur var hann einarður andstæðingur Ísókratesar og skóla hans. Sumir telja að ritið Mælskufræði handa Alexander (Rhetorica ad Alexandrum), sem er venjulega talið með verkum Aristótelesar þótt almennt sé það talið ranglega eignað honum, sé í raun réttri eftir Anaxímenes; aðrir telja að verkið sé mun yngra.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Anaximenes of Lampsacus“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 2. apríl 2006.
Tengt efni
breyta Þessi fornfræðigrein sem tengist heimspeki og sögu er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.