Amflora
Amflora er erfðabreytt kartöfluyrki. Hún er mjög mjölmikil og var aldrei framleidd til manneldis heldur sem hráefni í kartöflusterkjuiðnaði.
Sterkja í venjulegri kartöflu er úr tveimur þáttum - amylopectin og amylose. Báðir þessir þættir eru jafngildir sem næring en í iðnaði er ekki hægt að nota þá saman því þeir hafa mismunandi eiginleika. Í sterkjuiðnaði þarf eingöngu þykkniseiginleika amylopectin. Aftur á móti er gelmyndun amylose þáttarins óæskileg og getur truflað ákveðin ferli. Það krefst orku og vatns að skilja þessa þætti í sundur. Rannsakendur við plöntuvísindastöð BASF þróuðu nýja erfðabreytta sterkjukartöflu undir heitinu Amflora en þessi tegund framleiðir sterkju sem er nánast eingöngu úr amylopectin.
Amflora hefur verið ræktuð í Þýskalandi frá 2006 en ræktun var um þriggja ára skeið (frá mars 2010 til ársins 2013) leyfð í Evrópusambandinu. Dómstóll Evrópusambandsins komst að þeirri niðurstöðu að útgáfa leyfisins hafi ekki verið í samræmi við reglur og ógilti ræktunarleyfi fyrir Amflora.[1]
Tenglar
breyta- Pflanzenbiotechnologie – Konsolidierung der Werke – BASF Plant Science 1998[óvirkur tengill]
- TransGen-Datenbank zu Gentechnik: Kartoffeln Geymt 29 maí 2010 í Wayback Machine
- "Amflora – eine unendliche Geschichte" Geymt 3 ágúst 2011 í Wayback Machine
- Informationsdienst Gentechnik: Dossier Amflora Geymt 15 mars 2010 í Wayback Machine
- Dialogplattform Amflora der BASF Geymt 22 apríl 2017 í Wayback Machine
Tilvísanir
breyta- ↑ Dunmore, Charlie (13. des. 2013). „EU court annuls approval of BASF's Amflora GMO potato“. Afrit af upprunalegu geymt þann 13. október 2015. Sótt 26. feb. 2015.