Almenningsíþróttadeild Fram

Almenningsíþróttadeild Fram er íþróttadeild sem stofnuð var innan Knattspyrnufélagsins Fram árið 2003. Hún heldur utan um ýmis konar starfsemi sem ekki fellur undir hefðbundnar keppnisíþróttir

Sagan og starfið

breyta

Árið 2003 varð Fram fyrst reykvískra íþróttafélaga til að stofna sérstaka almenningsíþróttadeild. Var það í samræmi við íþróttastefnu Reykjavíkurborgar, sem kveður á um að íþróttafélög skuli bjóða upp á slíka starfsemi og helst innan sérstakra deilda.

Í raun var deildin aðeins framhald á starfsemi sem þegar fór fram á vegum félagsins. Frá 1995 var starfandi leikfimihópur í tengslum við íþróttahús og tækjasal Fram. Jafnframt höfðu verið skipulagðir skokk- og stafgönguhópar fyrir Framara og aðra íbúa hverfisins.

Almenningsíþróttadeildin er í dag starfrækt á tveimur stöðum: í Safamýri og í Grafarholti. Á báðum stöðum heldur deildin úti Íþróttaskóla Fram fyrir börn á aldrinum 3-6 ára. Skóli þessi var upphaflega stofnsettur af handknattleiksdeild Fram árið 1993.

Veturinn 2010-11 mun Fram senda lið til keppni í 2. deild Íslandsmóts karla í körfuknattleik undir merkjum almenningsíþróttadeildar. Verður það í fyrsta sinn sem Framarar tefla fram liði í þeirri íþrótt frá því að körfuknattleiksdeildin lognaðist út af á níunda áratugnum.