Alan Dundes
Alan Dundes (8. september 1934 – 30. mars 2005) var bandarískur þjóðfræðingur sem kenndi lengst af við Berkeley-háskóla í Kaliforníu. Hann fjallaði mikið um hefðbundið þjóðfræðiefni á borð við brandara, þjóðlög, þjóðsögur og goðsagnir í nútímasamfélögum. Hann var vinsæll kennari og fyrirlesari og hafði mikil áhrif á þróun greinarinnar í Bandaríkjunum. Verk hans voru undir áhrifum frá formgerðarhyggju og sálgreiningu.