Broddhlynur
(Endurbeint frá Acer platanoides)
Broddhlynur (fræðiheiti: Acer platanoides) er krónumikið einstofna lauftré af ættkvísl hlyna (acer). Útbreiðsla þess er í Evrópu (allt norður til Tromsö) og suðaustur til Tyrklands og Írans. Hæð broddhlyns nær 20-30 metrum og aldur hans allt að 250 ár. Börkurinn verður grófur og skorinn með aldri og rætur eru grunnlægar. Haustlitur er yfirleitt gulur.
Broddhlynur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Lauf broddhlyns
| ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Acer platanoides L. | ||||||||||||||||
Útbreiðsla broddhlyns
| ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Listi
|
Broddhlynur hefur verið notaður sem götutré í Norður-Ameríku og hefur verið notaður þar frá 18. öld. Hann er í sumum ríkjum flokkaður sem ágeng tegund.
Lítið hefur verið gróðursett af trénu á Íslandi en því hættir við haustkali. Fimmtugur broddhlynur í Hveragerði var valinn tré ársins árið 2003 [2]
Tenglar
breyta- Lystigarður Akureyrar - Broddhlynur Geymt 24 nóvember 2020 í Wayback Machine
- Skógrækt Ríkisins - Hlyntegundir Geymt 26 júní 2017 í Wayback Machine
Tilvísanir
breyta- ↑ Stevens, P. F. (2001 onwards). Angiosperm Phylogeny Website Version 9, June 2008 [and more or less continuously updated since].
- ↑ Fimmtugur broddhlynur er tré ársins Mbl.is, skoðað 11. júní, 2017.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Broddhlynur.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Acer platanoides.