Aðalbláber
Aðalbláber (Vaccinium myrtillus) eru ávextir ákveðins lyngs af bjöllulyngs-ættkvíslinni, lyngið sem berin vaxa á er kallað aðalbláberjalyng og er náskyldur bláberjalyngi en sjálft lyngið er ljósara og lítið tréni í kvistunum, og blöðin tennt. Blómin eru rauðgræn eða bleikrauð að lit. Berin eru dekkri (dökkblá yfir í nánast svart), minni og ekki eins sæt og „venjuleg“ bláber. Þau þroskast síðsumars eins og flest ber á Íslandi.
Aðalbláber | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Vaccinium myrtillus L. 1753 | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
|
Útbreiðsla
breytaAðalbláber vaxa víða um norðurhvel jarðar og ganga undir ýmsum nöfnum. Á Íslandi eru þau algengust á Vestfjörðum og Norðurlandi en sjaldgæfari á Suður- og Suðvesturlandi, þó þau finnist þar líka. Skýringin er sögð vera að aðalbláberjalyng sé viðkvæmara fyrir frosti en venjulegt bláberjalyng, og þrífist því betur þar sem snjóþyngsl eru mikil.
Næring og notkun
breytaAðalbláber eru vinsæl til matargerðar hjá mannfólkinu en einnig eru þau í miklu uppáhaldi hjá mörgum dýrum og fuglum. Úr þeim gera menn saft, sultu og fleiri afurðir. Þau þykja einnig góð til víngerðar, jafnvel betri en frændsystkini þeirra, venjulegu bláberin, þar sem þau innihalda meira tannín.
Aðalber
breytaAðalber eru dekksta afbrigðið af aðalbláberjum. Þau vaxa á svipuðum slóðum og eru m.a. algeng í Svarfaðardal.
Tengt efni
breytaHeimild
breyta- Aðalbláber Geymt 10 ágúst 2015 í Wayback Machine á heimasíðu Berjavina.