24 (sjónvarpsþáttur)
24 er bandarískur sjónvarpsmyndaflokkur, sem Fox Network framleiðir fyrir fyrirtæki Rons Howard Imagine Entertainment og er sýnd víða um heim.
24 | |
---|---|
Tegund | Drama |
Handrit | Joel Surnow Robert Cochran |
Leikarar | Kiefer Sutherland o.fl. |
Tónskáld | Sean Callery |
Upprunaland | Bandaríkin |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 9 |
Fjöldi þátta | 209 |
Framleiðsla | |
Staðsetning | Los Angeles, Kalifornía (þáttaraðir 1-6) New York (þáttaraðir 7) |
Lengd þáttar | 43 mínútur |
Framleiðsla | Joel Surnow Robert Cochran Brian Grazer |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | Fox RÚV |
Myndframsetning | 1080i (HDTV) |
Hljóðsetning | Dolby 5.1 |
Sýnt | 6. nóvember 2001 – 24. maí 2010 |
Tenglar | |
IMDb tengill |
Hver árgangur fjallar um atburði eins dags í lífi Jacks Bauer, alríkislögreglumanns hjá Counter Terrorist Unit eða CTU í Los Angeles, sem leikinn er af Kiefer Sutherland. Þátturinn sjallar einnig um samstarfsfólk Jacks hjá CTU í Los Angeles, ýmsa hryðjuverkamenn og starfsfólk Hvíta hússins.
Rauntímaeðli þáttanna gefur þeim yfirbragð mikillar spennu, sem lögð er áhersla á með tifandi stafrænni klukku sem birtist af og til, m.a. fyrir og eftir auglýsingahlé og í enda hvers þáttar. Í hverjum þætti er sýnt frá atburðum á ýmsum stöðum og fylgt er eftir ævintýrum ólíkra persóna sem allar eru flæktar í sömu atburðarásina.
Joel Surnow og Robert Cochran skópu 24 en fyrsti þátturinn var sýndur árið 2001.
Yfirlit yfir efni hvers árgangs
breytaHingað til hefur hver árgangur fylgt svipaðri formúlu. Þættirnir, sem gerast að verulegu leyti í Los Angeles, snúast einkum um baráttu Jacks Bauer og Counter Terrorist Unit þegar þjóðaröryggi Bandaríkjanna er ógnað, m.a. af hryðjuverkamönnum. Ýmsar fórnir sem koma á óvart, svik og annað ráðabrugg eru algeng. Auk aðalógnarinnar eru ýmsar aukaatburðarásir í hverjum árgangi, sem vara allnokkra þætti og eru samofnar meginatburðarásinni, sem hefur sjálf tilhneigingu til þess að einu sinni eða tvisvar þegar líður á árganginn. Jack Bauer stendur oft frammi fyrir gríðarmikilli persónulegri sálarangist.
Hver árgangur gerist á „rauntíma“ og hefst á ólíkum tíma dags. Hver þáttur lýsir atburðum einnar klukkustundar og hver árgangur lýsir atburðum sólarhrings og er 24 þættir. Hver þáttur hefst á því að Kiefer Sutherland í gervi Jack Bauer segir: „Eftirfarandi gerist milli [tími] og [tími]“.
- Í fyrsti árgangi hefst hver þáttur á því að Kiefer Sutherland les línuna: „Eftirfarandi gerist milli [tími] og [tími] á degi forsetaforvalskosninganna í Kaliforníu“.
1. dagur
breytaÍ fyrsta árgangi eru hryðjuverkamenn með það á prjónunum að ráða af dögum forsetaframbjóðandann, David Palmer, en hryðjuverkamennirnir hafa augastað á eiginkonu Jacks Bauer og dóttur þeirra að Bauer óvörum. Jack grunar að fólk sem hann vinnur með kunni að hafa átt hlut að máli í hvoru tveggja og reynir samtímis að verja Palmer og komast til botns í því hvers vegna konu hans og dóttur hefur verið rænt.
2. dagur
breytaÍ öðrum árgangi tekst Jack á við dauða konu sinnar og versnandi samband sitt við dóttur sína, sem telur að hættuleg atvinna Jacks hafi valdið dauða móður sinnar. Bauer er ekki lengur á launaskrá hins opinbera en forseti Bandaríkjanna, David Palmer, reiðir sig á Jack sem eina manninn sem hann getur treyst til að komast til botns í því hver sé að hóta að sprengja kjarnorkusprengju í Los Angeles og til að hindra að það gerist. Samtímis þessu verður til aukaatburðarás í kringum Kate Warner, sem er að skipuleggja brúðkaup systur sinnar og verðandi mágs síns, þegar CTU grunar að brúðguminn gæti verið viðriðinn áform hryðjuverkamannanna.
3. dagur
breytaÍ þriðja árgangi hefur Jack snúið aftur til starfa eftir að hafa lokið verkefni undir dulargevi, þar sem hann komst inn í raðir Salazar fjölskyldunnar, sem er eiturlyfjahringur með tengsl við hryðjuverkamenn. Á sama tíma er líki, sem er sýkt af dauðlegri veiru, kastað úr sendibíl hjá höfuðstöðvum heilbrigðisyfirvalda alríkisins. Hinn nýi félagi Jacks er ungur en hæfur maður, Chase Edmunds, sem á í ástarsambandi með dóttur Jacks, sem nú vinnur fyrir CTU. Jack og Chase verða nú að finna hryðjuverkamennina, sem bera ábyrgð á veiru-árásinni og eyða öllum sýnum veirunnar áður en henni er sleppt út í andrúmsloftið. Í þessum árgangi á Jack einnig við eiturlyfjavanda að stríða, sem á uppruna sinn í síðasta verkefni hans.
4. dagur
breytaÍ fjórða árgangi vinnur Jack Bauer í Washington D.C. fyrir varnarmálaráðuneytið en á í ástarsambandi með dóttur varnarmálaráðherrans, Audrey Raines. CTU starfar nú undir nýjum skipunum frá forsetanum en nýr yfirmaður CTU kallar Jack á sinn fund vegna yfirvofandi hryðjuverkaárásar. Varnarmálaráðherranum og dóttur hans er hins vegar rænt og Jack verður að reyna að bjarga þeim úr haldi ræningjanna. Eftir að þeim er bjargað átta þau sig á að mannránið var notað til að dylja áform um að valda ofhitnun og bráðnun í bandarískum kjarnorkuverum um land allt. En þetta reynist aftur vera einungis toppurinn á ísjakanum.
5. dagur
breytaÍ fimmta árgangi hefur Jack breytt nafni sínu í Frank Flynn og er að reyna að hefja nýtt líf utan CTU en honum berast þær fregnir að reynt hefði verið að ráða af dögum alla þá sem vissu að hann væri enn á lífi og að Palmer, fyrrverandi forseti, og Michelle Dessler, fyrrum samstarfskona Jacks, hefðu verið drepin. Einhver hefur reynt að koma sökinni á Jack og hann verður ásamt starffólki CTU að finna út hver stendur á bak við ráðabruggið samtímis því að hafa uppi á stolnu sentox taugagasi og uppræta samsæri sem teygir sig alla leið til Hvíta hússins og vopnaframleiðandans Omicron Corporation.
6. dagur
breytaÍ lok 5. dags hafði Jack verið handsamaður af kínverskum yfirvöldum fyrir innbrot í kínverska sendiráðið í Los Angeles sem leiddi til dauða kínversks embættismanns. Í upphafi 6. dags hefur Wayne Palmer, sem nú er forseti Bandaríkjanna, samið við kínversk stjórnvöld um að fá Jack lausan úr haldi eftir 20 mánuði í haldi. Hryðjuverkamenn fremja sjálfsmorðsárásir um gervöll Bandaríkin undir forystu Abu Fayed sem hefur tekist að sannfæra bandarísk stjórnvöld um að hann muni hjálpa þeim að handsama hryðjuverkamanninn Assad, sem þau telja ranglega að hafi skipulagt árásirnar. Fyrir hjálpina vill Fayed að bandarísk yfirvöld afhendi honum Jack Bauer.
Aðalleikarar
breytaÍtarlegra yfirlit má finna á lista yfir persónur í 24 og lista yfir aukapersónur í 24
Núverandi aðalpersónur og -leikarar
breytaLeikari | Persóna | Árgangar í aðalhlutverki | Árgangar í aukahlutverki |
---|---|---|---|
Kiefer Sutherland | Jack Bauer | Dagur 1-6 | enginn |
Mary Lynn Rajskub | Chloe O'Brian | Dagur 5-6 | Dagur 3-4 |
DB Woodside | Wayne Palmer | Dagur 6 | Dagur 3, 5 |
James Morrison | Bill Buchanan | Dagur 5-6 | Dagur 4 |
Peter MacNicol | Thomas Lennox | Dagur 6 | enginn |
Jayne Atkinson | Karen Hayes | Dagur 6 | Dagur 5 |
Carlo Rota | Morris O'Brian | Dagur 6 | Dagur 5 |
Eric Balfour | Milo Pressman | Dagur 6 | Dagur 1 |
Marisol Nichols | Nadia Yassir | Dagur 6 | enginn |
Regina King | Sandra Palmer | Dagur 6 | enginn |
Núverandi aukapersónur og -leikarar
breytaLeikari | Persóna | Árgangur |
---|---|---|
Glenn Morshower | Aaron Pierce | Dagur 1-6 |
Tzi Ma | Cheng Zhi | Dagur 4-6 |
Paul McCrane | Graham | Dagur 5-6 |
Alexander Siddig | Hamri Al-Assad | Dagur 6 |
James Cromwell | Phillip Bauer | Dagur 6 |
Kal Penn | Ahmed Amar | Dagur 6 |
Ruben Pla | Yusuf Amar | Dagur 6 |
Hrach Titizian | Zamil Kouri | Dagur 6 |
Harry Lennix | Walid Al-Rezani | Dagur 6 |
Adoni Maropis | Abu Fayed | Dagur 6 |
Garret Sato | Wu San | Dagur 6 |
Rick Schroder | Mike Doyle | Dagur 6 |
Rena Sofer | Marilyn | Dagur 6 |
Evan Ellingson | Josh | Dagur 6 |
David Hunt | Darren McCarthy | Dagur 6 |
Chad Lowe | Reed Pollock | Dagur 6 |
Powers Boothe | Noah Daniels | Dagur 6 |
Sammy Sheik | Masheer | Dagur 6 |
Scott William Winters | FBI-maður | Dagur 6 |
Jamison Jones | yfirmaður leyniþjónustunnar | Dagur 6 |
Steven Schub | hryðjuverkamaður | Dagur 6 |
Stephen Merchant | Dagur 6 | |
Patrick Sabongui | Nasir | Dagur 6 |
Al Woodley | Nichols, FBI-maður | Dagur 6 |
Michael Angarano | Scott Wallace | Dagur 6 |
Megan Gallagher | Julianne Wallace | Dagur 6 |
Raphael Sbarge | Ray Wallace | Dagur 6 |
Kim Raver | Audrey Raines | Dagur 6 |
William Devane | James Heller | Dagur 6 |
Fyrrverandi aðalpersónur og -leikarar
breytaLeikari | Persóna | Árgangur í aðalhlutverki | Árgangur í aukahluterki |
---|---|---|---|
Leslie Hope | Teri Bauer | Dagur 1 | enginn |
Sarah Clarke | Nina Myers | Dagur 1 | Dagur 2-3 |
Elisha Cuthbert | Kim Bauer | Dagur 1-3 | Dagur 5 |
Dennis Haysbert | David Palmer, forseti | Dagur 1-3 | Dagur 4-5 |
Sarah Wynter | Kate Warner | Dagur 2 | Dagur 3 |
Xander Berkeley | George Mason | Dagur 2 | Dagur 1 |
Penny Johnson Jerald | Sherry Palmer | Dagur 2 | Dagur 1, 3 |
Carlos Bernard | Tony Almeida | Dagur 2, 3, 5 | Dagur 1, 4 |
Reiko Aylesworth | Michelle Dessler | Dagur 3 | Dagur 2, 4, 5 |
James Badge Dale | Chase Edmunds | Dagur 3 | enginn |
Alberta Watson | Erin Driscoll | Dagur 4 | enginn |
Lana Parrilla | Sarah Gavin | Dagur 4 | Dagur 4* |
Roger Cross | Curtis Manning | Dagur 4-5 | Dagur 4*, dagur 6 |
Gregory Itzin | Charles Logan, forseti | Dagur 5 | Dagur 4, 6 |
Louis Lombardi | Edgar Stiles | Dagur 5 | Dagur 4 |
Jean Smart | Martha Logan | Dagur 5 | Dagur 6 |
* - Hóf árgang sem aukapersóna en varð aðalpersóna í miðjum árgangi. Jude Ciccolella, sem lék Mike Novick, kom fram í 58 þáttum í dögum 1, 2, 4 og 5 og er í sjöunda sæti yfir þær leikara sem oftast hafa komið fram í þáttunum en var þó aldrei aðalleikari.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „24 (TV series)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 20. mars 2006.
- Fyrirmynd greinarinnar var „24 (TV series)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 15. janúar 2007.