Upsílon
(Endurbeint frá Υ)
Upsílon eða Ypsílon (hástafur: Υ, lágstafur: υ) er tuttugasti bókstafurinn í gríska stafrófinu. Stafir sem hafa þróast frá stafnum eru hið rómverska V, Y, U og W, og kýrillíska U (У, у) og Izhitsa (Ѵ, ѵ). Í gríska númerakerfinu hefur hann gildið 400.