Þrjú á palli - Tekið í blökkina
Þrjú á palli - Tekið í blökkina er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1976. Á henni flytja Þrjú á palli sjómannakvæði eftir Jónas Árnason við írsk þjóðlög.
Þrjú á palli - Tekið í blökkina | |
---|---|
SG - 099 | |
Flytjandi | Þrjú á palli |
Gefin út | 1976 |
Stefna | Þjóðlög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Stjórn | Sigurður Árnason |
Lagalisti
breyta- Riggarobb - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Þetta er nóg - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Kútter Sigurfari - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Víst er svo - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Alli Jó - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Í Kolluál - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Bíldudals-Kata - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Hríseyjar-Marta - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Hoffmannshnefar - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Það var hann Binni í Gröf - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Metta mittisnetta - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
- Þegar þeir jörðuðu JónGeir - Lag - texti: Írskt þjóðlag - Jónas Árnason
Textabrot af bakhlið plötuumslags
breytaÞetta er fimmta tólf laga platan. sem Þrjú á Palli gera við ljóð Jónasar Árnasonar. Eins og fyrr hefur Jónas aðallega valið írsk þjóðlög til að gera ljóð við. Einnig hafa Þrjú á Palli. þ. e. a. s. þau Troels Bendtsen. Edda Þórarinsdóttir og Halldór Kristinsson gert tvær plötur með íslenzkum þjóðlögum.
Jón Sigurðsson útsetti alla tónlist á plötunni, hann stjórnar undirleik hljómsveitar og leikur á bassa. Nokkrir aðrir hljómlistamenn koma við sögu í einstaka lögum. Grettir Björnsson á harmoniku, Stefán Stephensen á óbó. Jón Sigurbjörnsson á flautu, Sigurður Rúnar Jónsson á fiðlu og Helgi Guðmundsson á munnhörpu. Auk þess leikur strengjasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands í nokkrum lögum. Hljóðritun fór fram hjá Tóntækni h.f. Tæknimaður: Sigurður Árnason. Hljóðblöndun: Sigurður Árnason. Jón Sigurðsson og Troels Bendtsen. Mynd á framhlið umslags gerði Jónas Guðmundsson, stýrimaður, sem á síðari árum er kunnur fyrir ritstörf og listmálun. |
||