Þórarinn Böðvarsson
Þórarinn Böðvarsson (3. maí 1825 – 17. maí 1895) var íslenskur prestur, rithöfundur og alþingismaður.
Þórarinn fæddist í Gufudal í Austur-Barðastrandarsýslu. Hann var prestur í Görðum á Álftanesi frá 1868 til dauðadags og kostaði byggingu steinkirkju þar, sem reist var á árunum 1879 – 1889. Hann veitti einnig fé til stofnunar skóla, sem varð Flensborgarskólinn í Hafnarfirði. Þórarinn gaf út Lestrarbók handa Alþýðu á Íslandi, sem oft var nefnd Alþýðubókin, árið 1874.
Tenglar
breyta- Þórarinn prófastur Böðvarsson. Þórhallur Bjarnarson, Andvari 1. janúar 1897, bls. 1 –16.