Úlfhams saga
Úlfhams saga er fornaldarsaga, sem segir frá Hálfdani vargstakki Gautakonungi og Úlfhami syni hans og átökum þeirra feðga við menn og vættir. Sagan er varðveitt í gömlum rímum, auk þriggja lausamálstexta frá 17., 18. og 19. öld, sem allar byggja beint eða óbeint á efni rímnanna.
Leikritið Úlfhams saga
breytaLeikritið Úlfhams saga er byggt á Vargstökum eða Úlfhams rímum sem eru taldar frá 14. öld, og urðu aðgengilegar með doktorsritgerð Aðalheiðar Guðmundsdóttur. María Ellingsen átti hugmyndina að verkinu og setti saman hóp listamanna til þess að setja það upp: Eivöru Pálsdóttur frá Færeyjum, Reijo Kela dansara frá Finnlandi, Snorra Frey Hilmarsson leikmyndateiknara, Grétu Maríu Bergsdóttur dramatúrg og Andra Snæ Magnason rithöfund, sem samdi leiktextann. Leikritið var sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu árið 2004, og naut töluverðra vinsælda.
Heimildir
breyta- Aðalheiður Guðmundsdóttir (útg.): Úlfhams saga. Reykjavík 2001. Doktorsritgerð. Stofnun Árna Magnússonar, Rit 53. ISBN 9979-819-77-4 [1]
- Vefsíða Árnastofnunar
Tenglar
breyta- Um útgáfuna á Úlfhams sögu Geymt 22 desember 2017 í Wayback Machine — Af vefsíðu Árnastofnunar.
- Um leikritið Úlfhams sögu Geymt 28 maí 2008 í Wayback Machine