Ólafur Rafnsson
Ólafur Eðvarð Rafnsson (fæddur 7. apríl 1963,dáinn 19. júní 2013) var lögfræðingur í Hafnarfirði, forseti Íþróttasambands Íslands[1] og forseti FIBA Europe[2].
Ólafur var formaður Körfuknattleikssambands Íslands frá 1996 – 2006 þegar hann var kjörinn forseti ÍSÍ.
Körfuknattleiksferill
breytaFélagslið
breytaÁ yngri árum lék Ólafur körufuknattleik með Haukum í Hafnarfirði og seinna þjálfaði hann liðið í Úrvalsdeild. Sem leikmaður lék hann 109 leiki í Úrvalsdeild og skoraði 1061 stig.[3] Hann varð Íslandsmeistari með Haukum 1988 og bikarmeistari 1985 og 1986.
Landsliðið
breytaÓlafur lék 7 leiki fyrir landslið Íslands í körfubolta á milli 1985 og 1986.[4]
Fjölskylda
breytaDóttir Ólafs er Auður Íris Ólafsdóttir, leikmaður landsliðs Íslands í körfubolta.[5]
Andlát
breytaÓlafur varð bráðkvaddur í Geneva í Sviss, fimmtugur að aldri, þar sem hann sótti fund í miðstjórn FIBA World, Alþjóða Körfuknattleikssambandsins.[6][7]
Tilvísanir
breyta- ↑ Stjórn ÍSÍ[óvirkur tengill]
- ↑ „Stjórn FIBA Europe“. Afrit af upprunalegu geymt þann 12. maí 2013. Sótt 26. maí 2013.
- ↑ Ólafur Rafnsson Stats
- ↑ „KKÍ | A landslið“. kki.is. Sótt 8. júní 2017.
- ↑ Ólafur E. Rafnsson
- ↑ An Obituary: Olafur Rafnsson
- ↑ Ólafur Rafnsson látinn
Fyrirrennari: Kolbeinn Pálsson |
|
Eftirmaður: Hannes Sigurbjörn Jónsson |