Íslensk þjóðkvæði

Íslensk þjóðkvæði eru kvæði sem hafa notið vinsælda á Íslandi alveg frá því á 15. öld og jafnvel mun lengur. Enginn veit um aldur þessara þjóðkvæða en sum þeirra eru eldforn og gætu sum þeirra hafa verið ort á þjóðveldisöld (sagnakvæði, þulur og barnagælur). Helstu einkenni íslenskra þjóðkvæða eru þau að þau eru höfundalaus, geymdust lengi á vörum manna og komust seint á blað eða bók.

Flokkun íslenskra þjóðkvæða

breyta

Helstu flokkar íslenskra þjóðkvæða eru:

  1. Barnagælur
  2. Sagnadansar
  3. Sagnakvæði
  4. Vikivakar
  5. Þulur

Rímur, heimsósómar, heimslystarkvæði, og ævi-og ellikvæði tilheyra ekki íslenskum þjóðkvæðum þar sem þessir flokkar nutu mun meiri virðingar heldur en þjóðkvæðin. Þá eru höfundar rímna síðari alda t.a.m. yfirleitt þekktir, ólíkt kvæðum sem tilheyra flokkum íslenskra þjóðkvæða.