Ásgeir Þór Davíðsson

Ásgeir Þór Davíðsson, oftast kallaður Geiri á Goldfinger (f. 25. janúar 1950, d. 20. apríl 2012) var íslenskur athafnamaður sem þekktastur er fyrir að hafa rekið skemmtistaðinn Goldfinger í Kópavogi. Goldfinger var fyrrum nektardansstaður en eftir að nektardans var bannaður á Íslandi 2010 var staðnum breytt í veitingastað.[1] Ásgeir lést aðfaranótt 20 apríl 2012 úr hjartaáfalli á heimili sínu.

Ásgeir Þór rak áður skemmtistaðinn Maxim's í Hafnarstræti í Reykjavík.

Tilvísanir

breyta

Tenglar

breyta