Álver
Álver eru verksmiðjur þar sem rafgreining áls fer fram. Rafgreiningin fer fram í kerskálum, í fjölda kerja sem gerð eru úr kolefnum og eru með stálhúð. Á botninn safnast heitt, fljótandi, ál sem er tappað af með reglulegu millibili. Álið má alls ekki kólna og harðna þar því viðgerð á kerjunum er kostnaðarsöm.
Álver á Íslandi
breytaStarfrækt eru þrjú álver á Íslandi. Áliðnaðurinn notar um 75% af þeirri raforku sem framleidd er í landinu. Árleg framleiðslugeta er samanlagt 800.000 tonn, en í heiminum öllum eru samanlagt 40 milljón tonn framleidd á ári.[1] Álverin eru:
- Álverið í Straumsvík starfrækt af Rio Tinto (hét áður Alcan). Framleiðsla hófst 1969.
- Álverið á Grundartanga starfrækt af Norðuráli. Framleiðsla hófst 1997.
- Álverið í Reyðarfirði starfrækt af Alcoa-Fjarðaráli. Framleiðsla hófst 2007.
Tenglar
breyta- „Hvað mengar eitt álver mikið í samanburði við bíl?“. Vísindavefurinn.
- „Af hverju eru álver byggð svona löng og mjó?“. Vísindavefurinn.
- Frá upphafi til álvers; grein í Morgunblaðinu 1998
- Rafmagnaðir áldraumar; grein í Morgunblaðinu 1997
- Ísland og álið; grein í Morgunblaðinu 2000
- Við taki markvisst og raunhæft samstarf þeirra aðila sem þessi mál varða; grein í Morgunblaðinu 1977